Fotbolti.net
21.09.13 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Josh McEachran lánaður til Watford (Staðfest)

Josh McEachran lánaður til Watford (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jos McEachran, ungur miðjumaður Chelsea, hefur verið lánaður út til Watford sem spilar í Championship deildinni undir stjórn Gianfranco Zola.

Watford var nálægt því að komast í úrvalsdeildina á síðasta tímabili og ætlar Zola sér eflaust að gera aðra atlögu að toppsætunum.
McEachran er í miklum metum innan herbúða Chelsea en ekki talinn nógu þroskaður fyrir aðalliðið þrátt fyrir að vera 20 ára gamall.

McEachran hefur spilað 22 leiki fyrir Chelsea, 11 í úrvalsdeildinni og sex í Meistaradeildinni.

Hann hefur þá einnig spilað á láni hjá Swansea og Middlesbrough og verður eflaust í liði Watford sem mætir Barnsley í næstu umferð.

Heimild: The Guardian

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.