Newcastle 0 - 0 Brighton
Newcastle og Brighton gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Brighton mætti á St. James' Park og spilaði flottan bolta. Heimamenn voru hugmyndasnauðir og virkuðu skrefi eftirá í öllum sínum aðgerðum.
Brighton var betri aðilinn en færanýtingin var slæm. Aðeins þrjú skot af sextán rötuðu á rammann. Gestirnir komust næst því að skora á 74. mínútu leiksins en Fabian Schär náði að bjarga á marklínu.
Sex mínútum var bætt við en hvorugu liði tókst að skora. Brighton er því með sex stig eftir sex umferðir og Newcastle fimm.
Athugasemdir