James Maddison vakti athygli á sér þegar hann mætti á King Power Stadium í morgun. Hann var nefnilega með stórfurðulegan bakpoka á öxlunum og voru fréttamenn ekki lengi að finna út hvaðan hann kom.
Bakpokinn hans Maddison er framleiddur af Louis Vuitton og kostar yfir 6500 pund, sem er rétt rúm milljón í íslenskum krónum.
Hægt er að segja að mikið grín hafi verið gert af Maddison fyrir bakpokavalið og þá sérstaklega vegna verðmiðans.
Þetta hafði þó ekki áhrif á miðjumanninn í leiknum gegn Tottenham, þar sem hann skoraði sigurmarkið og var valinn besti maður vallarins af Sky Sports.
I’ve just seen him stuffing the MOM trophy in it too 😂 https://t.co/rEN754PuqR
— Ben Chilwell (@BenChilwell) September 21, 2019
Athugasemdir