Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 21. september 2022 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Botman hafnaði landsliðssæti - Þjálfarinn svekktur
Mynd: EPA

Sven Botman varnarmaður Newcastle var ekki valinn í leikmannahóp hollenska landsliðið fyrir verkefni vikunnar. Þjálfari u21 árs liðsins vildi hins vegar fá hann.


Þessi 22 ára gamli miðvörður hafnaði því tilboði hins vegar til að einbeita sér að Newcastle.

„Ég hringdi í hann og við spjölluðum um þetta. Ég sætti mig við hans ákvörðun en ég skil hann ekki. Það er öllum frjálst a ðkoma hingað en ég var vonsvikinn með þessa tilkynningu," sagði Erwin van de Looi þjálfari u21 árs landslið Hollands.

„Við erum að undirbúa okkur fyrir EM (næsta sumar), þá viltu hafa alla hérna. Þú vilt líka að allir vilji koma en ef þeir vilja það ekki þá vilja þeir það ekki."

Botman hefur leikið fimm leiki fyrir Newcastle en liðið er án taps með hann innanborðs.


Athugasemdir
banner
banner
banner