Fotbolti.net
21.10.13 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Dragan Stojanovic tekur við KF (Staðfest)

Dragan Stojanovic tekur við KF (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða KF

Dragan Stojanovic hefur verið ráðinn þjálfari KF en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í gær.

Dragan tekur við KF af Lárusi Orra Sigurðssyni sem hætti með KF eftir fall liðsins úr 1. deidlinni í haust. Lárus Orri hafði þá stýrt KF í þrjú ár en hann kom liðin upp um deild í fyrra.
Dragan stýrði Völsungi til sigurs í 2. deildinni í fyrra en hætti í júlí á þessu ári eftir dapurt gengi.

Frá 2007-2010 þjálfaði Dragan einnig kvennalið Þórs/KA með góðum árangri.

Á sama tíma og Dragan skrifaði undir hjá KF í gær skrifuðu einnig ungir og efnilegir leikmenn félagsins undir samning til næstu tveggja ára. Þeir eru Grétar Áki Bergsson, Kristófer Andri Ólafsson og Örn Elí Gunnlaugsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.