21.10.14 - 20:32
Magnús Már Einarsson
Jón Hálfdán tekur við BÍ/Bolungarvík (Staðfest)
Nigel Quashie til aðstoðar

Jón Hálfdán, Samúel Samúelsson og Nigel Quashie við undirskriftina í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Þórir Karlsson

Jón Hálfdán Pétursson hefur verið ráðinn þjálfari BÍ/Bolungarvíkur í 1. deildinni en hann hefur áður þjálfað yngri flokka félagsins í mörg ár.
Jón Hálfdán skrifaði undir þriggja ára samning við BÍ/Bolungarvík í kvöld.
Hann tekur við af Jörundi Áka Sveinssyni sem hefur stýrt BÍ/Bolungarvík undanfarin þrjú tímabil.

Nigel Quashie verður Jóni til aðstoðar en hann hefur spilað með BÍ/Bolungarvík undanfarin tvö ár.
Quashie spilaði á sínum tíma rúmlega 100 leiki í ensku úrvalsdeildinni en ekki er ljóst hvort hann muni halda áfram að spila með Vestfirðingum næsta sumar eða hvort hann einbeiti sér að þjálfuninni.