Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 21. október 2020 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnar Sveinn: Rödd leikmanna virðist engu máli skipta
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Sveinn Geirsson, leikmaður Fylkis og forseti Leikmannasamtaka Íslands, gagnrýnir KSÍ fyrir að hugsa ekki um hag eða heilsu leikmanna.

KSÍ tók í gær ákvörðun að halda áfram og er stefnan sett á að byrja aftur í öllum deildum í meistaraflokki í næsta mánuði.

Arnar Sveinn skrifar á Twitter: „'Við stöndum saman þegar á reynir og látum úrslitin ráðast á vellinum ef mögulegt er.' - svona lýkur yfirlýsingu frá stjórn KSÍ varðandi ákvörðun KSÍ um að klára mótin. Hverjir eru þetta sem eru að standa saman? Til hvaða aðila var leitað til þess að komast að þessari niðurstöðu?"

„Án þess að taka afstöðu til þess hvort að mér finnist ákvörðun KSÍ rétt eða röng að þá finnst mér alveg tilefni til þess að spyrja að því hvernig þessi ákvörðun var tekin - og fyrir hverja."

„Nú eru settir leikir 8. nóvember, 6 dögum eftir að hægt er að hefja alvöru æfingar. Þarna er verið að setja leikmenn á öllum aldri af stað aftur í þriðja skipti þetta tímabil eftir nokkurra vikna stopp - og þeir fá 6 daga til þess að vera tilbúnir í 90 mínútna leik."

„Það eitt og sér, burtséð frá því hvort eigi að klára mótið, þykir mér algjörlega galið og sýnir að ákvörðunin er tekin án þess að verið sé að hugsa um heilsu eða hag leikmanna. Rödd leikmanna virðist engu máli skipta, ekki núna frekar en áður og það virðist ekki ætla að breytast."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner