Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 21. október 2020 15:51
Elvar Geir Magnússon
Hakimi ekki með Inter í kvöld - Er með veiruna
Achraf Hakimi, leikmaður Inter, hefur greinst með kórónaveiruna og missir af leik Inter gegn Borussia Mönchengladbach í Meistaradeildinni í kvöld.

Þessi 21 árs fyrrum leikmaður Borussia Dortmund þarf nú að fara í tíu daga sóttkví en getur snúið til baka þegar hann mun greinast neikvæður í skimun.

Alessandro Bastoni og Radja Nainggolan hafa jafnað sig eftir veruna en Ashley Young hefur ekki náð að losa sig við hana.

Roberto Gagliardini, Ionut Radu og Milan Skriniar eru einnig enn með veiruna.
Athugasemdir