Leon Osman, fyrrum miðjumaður Everton, er hrifinn af því hvernig Gylfi Þór Sigurðsson hefur byrjað þetta tímabil með Everton.
Gylfi átti erfitt uppdráttar á síðustu leiktíð með Everton. Everton keypti Abdoulaye Doucouré, Allan og James Rodriguez í sumar. Gylfi byrjaði fyrstu þrjá deildarleikina á bekknum og er ekki lengur fremstur í goggunarröðinni hjá félaginu.
Hann hefur hins vegar byrjað í deildabikarnum og komið öflugur inn sem varamaður í leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur byrjað einn deildarleik, gegn Brighton þar sem hann lagði upp mark í 4-2 sigri.
Osman telur að koma James Rodriguez til Everton hafi hjálpað engum eins mikið og Gylfa.
„Leikmaðurinn sem hefur grætt mest á komu James, er (Gylfi) Sigurðsson," sagði Osman við Sky Sports. „Hann (Gylfi) hefur verið stórkostlegur í öllum leikjunum sem ég hef séð. Hann er með gáfaðan leikmann í James sem hann getur sent boltann á," segir fyrrum miðjumaðurinn fyrir leikinn gegn Liverpool um síðustu helgi.
„Gylfi er fljótur að hugsa og þú þarft að hafa leikmenn með svipaðan eiginleika í kringum þig, sem skilur hvernig þú ætlar að spila."
Athugasemdir