Það er Íslendingaslagur í Sambandsdeildinni í kvöld þegar CFR Cluj tekur á móti AZ Alkmaar í Rúmeníu.
Rúnar Már Sigurjónsson byrjar á varamannabekk CFR Cluj en Albert Guðmundsson byrjar í framlínu AZ.
AZ er á toppi D-riðils með fjögur stig eftir tvær umferðir. CFR Cluj er á botninum með eitt stig.
Það eru átta leikir á dagskrá í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og sex í Sambandsdeildinni.
Það er nokkuð af spennandi leikjum í kvöld þar sem West Ham mætir Genk á meðan Rangers tekur á móti Bröndby.
Napoli á heimaleik gegn Legia Varsjá á meðan PSV Eindhoven tekur á móti AS Mónakó.
Byrjunarlið AZ: Vindahl, Sugawara, Chatzidiakos, Martins Indi, Wijndal, Midtsjö, De Wit, Clasie, Guðmundsson, Karlsson, Pavlidis.
Athugasemdir