fim 21. október 2021 15:15
Elvar Geir Magnússon
Wanda fyrirgaf Icardi - Ætla ekki að skilja
Mauro Icardi og Wanda Nara.
Mauro Icardi og Wanda Nara.
Mynd: Getty Images
Stjörnuparið Mauro Icardi og Wanda Nara eru sífellt á slúðursíðunum en nú berast þær fréttir af sambandi þeirra að þau séu tekin saman að nýju og ætli ekki að skilja.

Icardi, sem er ítalskur sóknarmaður Paris Saint-Germain, birti færslu á Instagram þar sem hann þakkaði eiginkonunni fyrir að hafa áfram trú á þeirra fallegu fjölskyldu.

Eftir dramatíska viku setti Wanda, sem einnig er umboðsmaður Icardi, svo mynd af þeim saman á Instagram og staðfesti að þau væru tekin saman aftur.

Wanda steig fram á samfélagsmiðlum um helgina, sakaði Icardi um framhjáhald og sagði hann hafa eyðilagt aðra fjölskyldu. Þau byrjuðu að stinga saman nefjum 2013 þegar Nara var gift Maxi Lopez fyrrum samherja Icardi hjá Sampdoria.

Á mánudaginn birti Wanda svo mynd af sér án giftingarhringsins.

Icardi fékk leyfi frá því að spila Meistaradeildarleik gegn RB Leipzig og var einnig á fjarverandi á tveimur æfingum á meðan hann vann í sínu einkalífi. En allt er gott sem endar vel og hjónin, sem eiga tvær dætur saman, halda sambandi sínu áfram. Wanda á þrjá syni frá fyrrum hjónabandi með Lopez.
Athugasemdir
banner
banner
banner