21.10.26 - 08:25
Brynjar Ingi Erluson
Tjáði sig um meiðsli þremenninganna - „Þetta eru verstu fréttirnar“

Dembele meiddist í fyrri hálfleik

Mynd: EPA

Dembele meiddist í fyrri hálfleik

Mynd: EPA
Paris Saint-Germain varð fyrir þremur áföllum í 4-2 sigrinum á Barcelona í Meistaradeildinni í gær þegar þrír leikmenn liðsins þurftu að fara meiddir af velli.

TENGT EFNI
PSG með fjórtán mörk í þremur leikjum - „Þvílík stemning!“
Franski landsliðsmaðurinn Ousmane Dembele þurfti að fara meiddur af velli í fyrri hálfleik og þeir Marquinhos og Khvicha Kvaratskhelia sömuleiðis í þeim síðari.
Luis Enrique, þjálfari PSG, vildi lítið segja um meiðsli þremenninganna eftir leikinn enda lá ekki fyrir hversu alvarleg þau væru.
„Ég er ekki læknir. Við verðum að bíða þangað til á morgun (í dag) og sjá hvað kemur út úr rannsóknunum. Við erum með þrjá meidda leikmenn og allir eru þeir gríðarlega mikilvægir fyrir okkur. Þetta eru verstu fréttirnar, en svona er fótboltinn á hæsta stigi,“ sagði Enrique.
Samkvæmt CulturePSG er grunur um að bæði Dembele og Marquinhos hafi tognað aftan í læri, en meiri áhyggjur eru af Kvaratskhelia sem meiddist á hné. Óttast er að meiðsli hans gætu verið alvarlegri.