Fotbolti.net
21.10.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild

Carragher lofsamar Ngumoha - „Hann hefur leyst eitt vandamál fyrir stjórann“

Carragher lofsamar Ngumoha - „Hann hefur leyst eitt vandamál fyrir stjórann“
Canon

Mynd: EPA

Sparkspekingurinn Jamie Carragher sparaði ekki hrósið í garð Rio Ngumoha eftir frábæra frammistöðu Englendingsins með Liverpool í gær.
„Liverpool er stærsta félag heims“
TENGT EFNI

„Liverpool er stærsta félag heims“

Ngumoha lagði upp tvö mörk í 4-3 sigrinum á Villarreal og varð um leið yngsti leikmaðurinn í sögu Liverpool til að leggja upp mark í Meistaradeildinni.

Carragher segir að frammistaða Ngumoha á hægri kantinum hafi létt á áhyggjum Andoni Iraola, stjóra Liverpool, sem hefur átt í vandræðum með þá stöðu.

„Hann var ótrúlega góður. Hann varð yngsti leikmaðurinn í sögu Liverpool til að leggja upp mark í Meistaradeildinni og sló þar með met Michael Owen, aðeins 18 ára gamall. Hann er framtíðarstjarna og er þegar kominn í A-landslið Englands.“

„Hann hefur ekki enn skrifað undir nýjan samning við Liverpool en það þarf að ganga frá því. Ég vona svo sannarlega að hann skrifi undir. Við erum með marga kantmenn í liðinu en miðað við hvernig hann er að spila núna er hann sá besti.“

„Liverpool hefur verið í vandræðum með hægri kantinn. Við erum með marga leikmenn vinstra megin, þar sem Ngumoha er hvað bestur, en hann var stórkostlegur hægra megin í þessum leik. Hann hefur því leyst eitt vandamál fyrir stjórann,“
sagði Carragher á CBS Golazo.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.