Fotbolti.net
21.10.26 - 09:15
Elvar Geir Magnússon

Vilja að Palace hætti að nota lifandi lukkudýr

Þessi örn flýgur um heimavöll Lazio á Ítalíu.

Þessi örn flýgur um heimavöll Lazio á Ítalíu.

Canon

Mynd: EPA

Dýraverndunarsamtök vilja að Crystal Palace hætti að nota lifandi örn sem lukkudýr. Samtökin segja að leikvangur fullur af háværum áhorfendum sé enginn staður fyrir dýr.
PETA samtökin vilja að Palace hætti að nota örninn Phoenix í sýningum fyrir leiki á Selhurst Park, þar sem hann er vanur því að fljúga um.

Lið Palace hefur verið kallað "Ernirnir (Eagles)" síðan 1973 og félagið hóf að nota lifandi örn á leikdögum árið 2010. Örninn Kayla gegndi þessu hlutverki í áratug. Arftaki hennar, Phoenix, kom fyrst fram í ágúst 2024.

PETA segir að fuglar geti orðið „hræddir, ruglaðir og gripnir ofsahræðslu“ í umhverfi fótboltaleikvanga og það skapi hættu, bæði fyrir dýrin sjálf og áhorfendur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.