21.11.13 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Federico Macheda til Doncaster á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Doncaster Rovers í ensku Championship deildinni hefur fengið framherjann Federico Macheda á láni frá Manchester United á nýjan leik.
Lánssamningurinn gildir fram að áramótum.
Lánssamningurinn gildir fram að áramótum.
Hinn 22 ára gamli Macheda skoraði þrjú mörk í fimm leikjum á láni hjá Doncaster fyrr á tímabilinu en hann fór aftur til Manchester United í byrjun október vegna meiðsla.
Macheda skaust fram á sjónarsviðið þegar hann skoraði mikilvæg sigurmörk fyrir Manchester United tímabilið 2008/2009.
Síðan þá hefur hann átt erfitt uppdráttar hjá United og leikið með Samdporia, QPR, Stuttgart og síðast Doncaster á láni.