Fotbolti.net
21.11.26 - 10:21
Brynjar Ingi Erluson

Aron Ingi semur við Breiðablik

Aron Ingi semur við Breiðablik
Canon

Mynd: Breiðablik

Unglingalandsliðsmaðurinn Aron Ingi Hauksson hefur skrifað undir sinn fyrsta meistaraflokkssamning við Breiðablik, en félagið greinir frá tíðindunum á samfélagsmiðlum sínum.
Aron er 15 ára gamall afturliggjandi miðjumaður sem getur einnig leyst stöður hægri bakvarðar og miðvarðar. Hann er hávaxinn, yfirvegaður og framsækinn leikmaður með mikla tæknilega getu og binda Blikar miklar vonir við hann.

Aron á að baki þrjá leiki með U15 ára landsliði Íslands og hefur einnig verið valinn í úrtakshóp U16 ára landsliðsins af Lúðvík Gunnarssyni, þjálfara liðsins. Hópurinn kemur saman til æfinga í Miðgarði dagana 30. nóvember til 2. desember.

Hann hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína í yngri flokkum Breiðabliks, en hann lék með bæði 2. og 3. flokki í sumar og gerði þar góða hluti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.