Fotbolti.net
21.12.13 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Yeboah til M\'Gladbach (Staðfest)

Yeboah til M\'Gladbach (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Kwame Yeboah, sóknarmaður Brisbane Roar í Ástralíu, hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við þýska efstudeildarliðið Borussia Mönchengladbach.

Gladbach er í fjórða sæti þýsku deildarinnar, með 32 stig rétt eins og Borussia Dortmund sem er í þriðja sæti á markatölu.
,,Við erum ánægðir með að Kwame hafi ákveðið að ganga til liðs við okkur,\" sagði Max Eberl, yfirmaður íþróttamála hjá þýska félaginu.

,,Hann er gríðarlega efnilegur og er nákvæmlega sú tegund af leikmanni sem við erum að leita að. Hann mun fá allan þann tíma sem hann þarfnast til að laga sig að nýju umhverfi.\"

Yeboah er með tvöfaldan ríkisborgararétt og á enn eftir að velja á milli þess hvort hann vilji spila fyrir landslið Ástralíu eða Gana.

Heimild: Soccerway

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.