Fotbolti.net
21.12.15 - 08:57
Hafliði Breiðfjörð

Blatter og Platini í 8 ára bann frá fótbolta (Staðfest)

Afskiptum Blatter og Platini er nú formlega lokið eftir að þeir voru settir í 8 ára bann í dag.

Afskiptum Blatter og Platini er nú formlega lokið eftir að þeir voru settir í 8 ára bann í dag.

Canon

Mynd: Getty Images

Sepp Blatter forseti FIFA og Michel Platini forseti UEFA voru í morgun settir í átta ára bann frá öllu sem tengist fótbolta í kjölfar rannsóknar siðanefndar. Bannið tekur gildi þegar í stað.
Blatter er orðinn 79 ára gamall og ljóst að hann mun aldrei koma nálægt fótbolta aftur. Hann hefur verið forseti síðan árið 1998 en hann hafði áður ákveðið að hætta þegar forsetakosningar FIFA fara fram í febrúar.

Platini sem er sextugur hafði ætlað sér að verða eftirmaður hans og ætlaði að bjóða sig fram til forseta sambandsins. Nú er ljóst að af því verður ekki. Platini varð þrisvar kjörinn besti knattspyrnumaður Evrópu og var fyrirliði franska landsliðsins á sínum tíma. Hann hafði verið forseti UEFA síðan árið 2007.

Ástæða þess að þeir eru settir í 8 ára bann núna er sú að FIFA greiddi Platini 1,94 milljónir dollara árið 2011 en þá fór kjör fram til forseta FIFA sem Blatter vann.

Báðir neituðu því að hafa gert nokkuð rangt og fullyrtu að greiðslan hafi byggt á samkomulagi frá árinu 1998 vegna vinnu Platini fyrir FIFA á árunum 1998 - 2002 þegar hann var tæknilegur ráðgjafi Blatter.

Ekkert skriflegt samkomulag var um greiðsluna heldur segja þeir báðir að um munnlegan samning hafi verið að ræða en slíkt er löglegt að gera samkvæmt svissneskum lögum.

Málið var tekið fyrir hjá siðanefnd FIFA í síðustu viku og niðurstaðan svo kynnt í morgun. Auk bannsins var Platini sektaður um upphæð sem nemur 10 milljónum króna og Blatter 6,6 milljónir. Málinu er þó ekki lokið því svissneskur saksóknari sem kom upp um greiðsluna er enn að rannsaka málið.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.