Fotbolti.net
21.12.15 - 17:03
Magnús Már Einarsson

Guðbjörg Gunnarsdóttir til Djurgarden (Staðfest)

Guðbjörg Gunnarsdóttir til Djurgarden (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir hefur samið við Djurgarden í sænsku úrvalsdeildinni.

Guðbjörg þekkir vel til hjá Djurgarden því hún spilaði með liðinu frá 2009 til 2012 og var fyrirliði.
Hin þrítuga Guðbjörg hefur undanfarin tvö tímabil spilað með Lilleström í Noregi.

Guðbjörg varð bikarmeistari með Lilleström á þessu tímabili en á dögunum varð ljóst að hún myndi ekki skrifa undir nýjan samning við félagið.

Hún hefur nú samið við Djurgarden sem vann sér sæti í sænsku úrvalsdeildinni á nýjan leik í haust.

Happy to announce my comeback to Djurgården and Damallsvenskan. Looking forward to this new challenge in my career!😊⚽️🇸🇪@DIFDam @DIF_Fotboll

— Gudbjörg Gunnarsd. (@GuggaGunnars) December 21, 2015

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.