Fotbolti.net
21.12.15 - 15:26
Magnús Már Einarsson

Michu í spænsku D-deildina (Staðfest)

Michu í spænsku D-deildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski framherjinn Michu hefur gengið til liðs við Langreo sem leikur í D-deildinni í heimalandi hans.

Michu sló í gegn með Swansea tímabilið 2012/2013 þegar hann skoraði átján mörk.

Meiðsli hafa sett mikið strik í reikninginn síðan þá og Michu fékk sig lausan undan samningi hjá Swansea fyrir nokkrum vikum síðan.
Þessi 29 ára gamli leikmaður ætlar nú að leika með Langreo í D-deildinni en bróðir hans er þjálfari liðsins.

Michu ætlar að reyna að endurvekja feril sinn hjá Langreo og snúa aftur í fremstu röð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.