21.12.21 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Anna María í Fjölni (Staðfest)

Mynd: Baldvin Berndsen/Fjölnir

Mynd: Baldvin Berndsen/Fjölnir
Anna María Bergþórsdóttir hefur samið við Fjölni til ársins 2024.
Anna María kemur frá Selfossi þar sem hún er uppalin. Hún lék 9 leiki í Pepsi Max deildinni á síðustu leiktíð þar sem Selfoss endaði í 5. sæti.
Fjölnir endaði í 3. sæti í 2. deild á síðustu leiktíð.
Fréttatilkynning Fjölnis
Anna María semur við Fjölni
Fjölnir hefur samið við Önnu Maríu Bergþórsdóttur til 2024. Anna María, sem er fædd árið 2003, kemur frá Selfossi þar sem hún er uppalin. Hún er að hefja sitt fimmta tímabil í meistaraflokki og hefur samtals leikið 31 KSÍ leiki í Pepsi Max deild kvenna og bikarkeppni KSÍ, þar af 10 á nýafstöðnu tímabili. Anna María er sterkur miðjumaður sem getur einnig leyst hinar ýmsu stöður á vellinum.
Það er mikið fagnaðarefni að semja við þennan öfluga leikmann sem mun koma til með að styrkja liðið og gegna stóru hlutverki í meistaraflokki kvenna á komandi misserum. Knattspyrnudeildin hlakkar til næstu tímabila saman og væntir mikils af samstarfinu.