Fotbolti.net
21.12.21 - 13:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Guðjón Orri heim í ÍBV (Staðfest)

Guðjón Orri heim í ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Orri Sigurjónsson er genginn í raðir ÍBV á nýjan leik. Hann kemur frá KR þar sem hann hefur spilað síðustu tvö tímabil. Greint er frá þessu á heimasíðu ÍBV.

Guðjón er uppalinn í ÍBV en hefur spilað með Selfossi og Stjörnunni ásamt KR síðustu ár.
Guðjón lék þrettán leiki tímabilið 2015 með ÍBV en hélt svo upp á land í kjölfarið. Þessi 29 ára gamli markvörður skrifar undir tveggja ára samning við ÍBV.

Komnir í ÍBV:
Alex Freyr Hilmarsson frá KR
Andri Rúnar Bjarnason frá Danmörku
Guðjón Orri Sigurjónsson frá KR
Halldór Jón Sigurður Þórðarson frá Víkingi R.

Farnir:
Gonzalo Zamorano í Selfoss
Stefán Ingi Sigurðarson til Breiðabliks (var á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.