Fotbolti.net
21.12.21 - 17:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Laufey Harpa í Breiðablik (Staðfest)

Laufey Harpa í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Laufey Harpa Halldórsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Breiðablik. Hún kemur frá uppeldisfélagi sínu Tindastóli.
Laufey Harpa er 21 árs gömul, öflugur vinstri bakvörður. Hún hefur þegar spilað í sex ár með meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína.

Laufey Harpa var meðal annars í liði ársins þegar Tindastóll tryggði sér sæti í efstu deild haustið 2020. Í kjölfarið var hún valin í æfingahóp A-landsliðsins, en hún á auk þess að baki leiki með yngri landsliðum.

Laufey Harpa fór með Blikum til Parísar í síðustu viku og æfði þar með liðinu fyrir leikinn gegn stórliði PSG í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Sjá einnig:
Hin hliðin - Laufey Halldórsdóttir
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.