Fotbolti.net
22.01.13 - 17:16
Elvar Geir Magnússon

Ashley Cole búinn að framlengja (Staðfest)

Ashley Cole búinn að framlengja (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur staðfest að vinstri bakvörðurinn Ashley Cole sé búinn að skrifa undir eins árs framlengingu á samningi sínum. Hann er því bundinn félaginu út næsta tímabil.

„Ég hlakka til að hefja mitt áttunda tímabil hjá Chelsea,\" sagði Cole við undirskriftina.
Cole er 32 ára gamall Englendingur og á að baki 99 landsleiki og var hann lykilmaður í liði Chelsea sem varð Evrópumeistari á síðustu leiktíð. Þykir hann einn besti vinstri bakvörður heims og er þetta því mikið gleðiefni fyrir liðið.

Í vikunni bárust þær fréttir að Cole myndi skrifa undir hjá Chelsea og hefur það nú verið staðfest.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.