22.01.13 - 17:12
Elvar Geir Magnússon
Mapou Yanga-Mbiwa í Newcastle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Newcastle hefur tryggt sér varnarmanninn Mapou Yanga-Mbiwa frá Montpellier en þetta er staðfest á heimasíðu franska félagsins.
Kaupverðið er talið vera í kringum 7 milljónir punda en hann getur leyst allar varnarstöðurnar.

Það er frönsk innrás í gangi hjá Newcastle en Alan Pardew horfir til landsins í leit að liðsstyrk.
„Mapou Yanga-Mbiwa lék sinn 219. og síðasta leik fyrir Montpellier á sunnudaginn. Á þriðjudag gekk þessi 23 ára leikmaður til liðs við Newcastle sem er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Hann mun skilja eftir sig stórt skarð hjá Monptellier þar sem hann var einn af leiðtogum og kyndilberum liðsins. Félagið óskar honum alls hins besta,\" segir á heimasíðu Montpellier.
Yanga-Mbiwa hefur verið í herbúðum Montpellier síðan hann var unglingur.
„Þetta er mín önnur fjölskylda. Félagið hefur gefið mér allt og ég mun aldrei gleyma því. Mér líður eins og ég sé að kveðja fjölskyldu mína. Ég hlakka til að fara í enska boltann. Það er land þar sem allir elska fótbolta og lifa fyrir hann,\" segir leikmaðurinn.