22.01.13 - 15:35
Magnús Már Einarsson
Wesley Sneijder til Galatasaray (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Galatasaray hefur gengið frá kaupum á Wesley Sneijder miðjumanni Inter. Talið er að kaupverðið hljóði upp á 10 milljónir evra eða 8,4 milljónir punda.
Hinn 28 ára gamli Sneijder stóðst læknisskoðun hjá Galatasaray í morgun og skrifaði í kjölfarið undir þriggja og hálfs árs samning við félagið.

Félagaskiptin hafa legið í loftinu í þessum mánuði en Sneijder hefur ekkert spilað með Inter síðan í september út af deilum um samningamál.
,,Ég hringdi í Jose Mourinho og Louis van Gaal áður en ég tók ákvörðun. Þeir hafa haft mikil áhrif á feril minn og mér finnst álit þeirra vera mikilvægt. Þeir sögðu báðir það sama: farðu,\" sagði Sneijder.
Sumarið 2011 var Sneijder mjög sterklega orðaður við Manchester United en ekkert varð af félagaskiptunum þá.

Heimild: Sporting Life