Fotbolti.net
22.01.14 - 07:30
Hafliði Breiðfjörð

Helena Jónsdóttir í Fjölni (Staðfest)

Helena í leik með Þór/KA í fyrrasumar.

Helena í leik með Þór/KA í fyrrasumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Markvörðurinn Helena Jónsdóttir er gengin í raðir Fjölnis frá Þór/KA en gæti skipt tvisvar í viðbót á milli félaganna áður en tímabilið í Pepsi-deildinni hefst í sumar.
Sigurður Víðisson þjálfari Fjölnis sagði við Fótbolta.net í gærkvöldi að Helena muni spila með Fjölni í Reykjavíkurmótinu eða fram að því að keppni hefst í Lengjubikarnum.

Þá skiptir hún aftur heim í Þór/KA eftir mánuð og spilar með liðinu í Lengjubikarnum. Fari svo að Þór/KA fái bandarískan markvörð í vor eins og undanfarin ár mun hún svo skipta aftur í lið Fjölnis að sögn Sigurðar.

Sonný Lára Þráinsdóttir sem hefur varið mark Fjölnis undanfarin ár er gengin til liðs við Breiðablik og því vantar liðið markvörð.

,,Ég er að skoða að fá hana í sumar til að fylla skarð Sonnýjar,\" sagði Sigurður. ,,Ef Þór/KA fær kana í markið þá kemur hún aftur til okkar,\" bætti hann við.

Helena spilaði átta leiki fyrir Þór/KA í Pepsi-deildinni í fyrrasumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.