22.01.14 - 07:00
Hafliði Breiðfjörð
Jóhanna Steinþóra snýr aftur í FH (Staðfest)

Jóhanna Steinþóra í leik með FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhanna Steinþóra í leik með FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir er gengin í raðir FH að nýju eftir að hafa verið í Noregi á síðasta ári og misst af öllu tímabilinu.
Í Noregi lék hún með kvennaliði Sarpsborg. Hún fær leikheimild með FH í febrúar.
Í Noregi lék hún með kvennaliði Sarpsborg. Hún fær leikheimild með FH í febrúar.
Jóhanna Steinþóra verður 22 ára gömul á árinu. Hún spilaði síðast með FH sumarið 2012, samtals sjö leiki og skoraði eitt mark.
Hún kom til FH frá Grundarfirði árið 2008 og hefur skorað mikið fyrir liðið síðan þá.
Samtals hefur hún leikið 51 leik fyrir liðið í deild og bikar og skorað í þeim 27 mörk.
FH missti annan sóknarmann frá sér á dögunum því Sigrún Ella Einarsdóttir gekk í raðir Stjörnunnar.