Fotbolti.net
22.01.14 - 11:42
Magnús Már Einarsson

Kristinn Jens, Guðmundur og Sigurður í KV (Staðfest)

Kristinn Jens Bjartmarsson.

Kristinn Jens Bjartmarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KV hefur fengið varnarmanninn Kristinn Jens Bjartmarsson til liðs við sig frá Víkingi R.

Kristinn er 22 ára gamall bakvörður en hann er uppalinn hjá Víkingi R.

Kristinn spilaði níu leiki með Víkingi í fyrstu deildinni í sumar og tvo leiki í Borgunarbikarnum.

Samtals hefur Kristinn leikið 29 deildar og bikarleiki með Víkingi en hann var einnig á láni hjá ÍR hluta sumars 2012.
Þá hefur KV fengið Guðmund Sigurðsson og Sigurð Andra Jóhannsson á láni frá KR en þeir léku með 2. flokki í fyrra.

KV er að undirbúa sig undir átökin í 1. deildinni í sumar en liðið mætir Fylki á Reykjavíkurmótinu klukkan 21:00 í kvöld í leik sem er sýndur beint á Fótbolta.net í samstarfi við sporttv.is.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.