22.01.14 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Mido tekur við Zamalek (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Mido hefur verið ráðinn þjálfari hjá Zamalek í heimalandi sínu Egyptalandi.
Hinn þrítugi Mido verður um leið yngsti þjálfarinn í sögu egypska fótboltans en hann tekur við Zamalek af Helmi Toulan.

,,Ég vil segja við þá sem gagnrýna ráðninguna út af aldri mínum að þetta þykir eðlilegt í Evrópu og ég er klár í þessa áskorun,\" sagði Mido sem lék áður með Zamalek.
,,Ég var alltaf leiðtogi á vellinum. Ég hafnaði tilboði um að þjálfa unglingalið PSG, Masry í Egyptalandi og önnur lið til að taka við mínu ástkæra félagi.\"
Mido lagði skóna á hilluna í fyrra en hann lék meðal annars með Ajax, Celta Vigo, Marseille, Roma, Tottenham, Middlesbrough, Wigan og West Ham á ferli sínum.