Fotbolti.net
22.01.16 - 21:44
Arnar Geir Halldórsson
Ítalska deildin

Cristian Tello til Fiorentina (Staðfest)

Nýjasti leikmaður Fiorentina

Nýjasti leikmaður Fiorentina

Canon

Mynd: Getty Images

Cristian Tello mun leika með liði Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni út þetta tímabil en frá þessu var gengið nú undir kvöld.
Tello verður eftir sem áður í eigu Barcelona en hann hefur verið á láni hjá Porto síðasta eitt og hálfa árið en hefur átt erfitt uppdráttar í vetur og aðeins skorað tvö mörk í 20 leikjum.

Þessi 24 ára gamli Spánverji skoraði tuttugu mörk í 86 leikjum fyrir Barcelona á sínum tíma.

Fiorentina er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti en liðið situr í 4.sæti Serie A um þessar mundir, sex stigum á eftir toppliði Napoli.

Tello er annar sóknarmaðurinn sem gengur til liðs við Fiorentina á jafnmörgum dögum því félagið fékk Mauro Zarate frá West Ham í gær.

Þá gekk Tino Costa í raðir liðsins fyrr í dag en um leið tilkynnti Fiorentina um brottför Giuseppe Rossi til Levante.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.