Fotbolti.net
22.01.16 - 19:00
Arnar Geir Halldórsson

Daniel Amartey til Leicester (Staðfest)

Daniel Amartey til Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarliðið Leicester hefur gengið frá kaupum á Daniel Amartey sem kemur til liðsins frá FCK í Danmörku.
Kaupverðið er óuppgefið en samkvæmt enskum fjölmiðlum er verðið talið vera í kringum 6 milljónir punda.

Amartey sem er 21 árs gamall gerir fjögurra ára samning við Leicester.

Amartey spilar sem miðvörður en getur einnig leikið sem hægri bakvörður eða djúpur miðjumaður og hefur leikið í Danmörku undanfarin tvö ár eftir að hafa komið til FCK frá Djurgarden.

Hann á 6 landsleiki að baki fyrir A-landslið Gana og er annar leikmaðurinn sem kemur til Leicester í þessum mánuði en áður hafði liðið keypt Demarai Gray frá Birmingham.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.