22.01.16 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Framherji sem spilaði á HM í fyrra til Þór/KA (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images

Þór/KA hefur samið við Stephany Mayor, 25 ára gamlan sóknarmann, frá Mexíkó sem mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu Þórs.
Stephany er fjölhæfur sóknarsinnaður leikmaður sem hafur spilað 55 leiki fyrir landslið Mexíkó og í þeim leikjum hefur hún skorað tíu mörk.
Hún verður ekki eini Mexíkóinn í liði Þórs/KA næsta sumar því markvörðurinn Cecilia Santiago samdi við félagið á dögunum.
Báðar spiluðu þær með Mexíkó í lokakeppni HM í fyrra sem og árið 2011.
Hún verður ekki eini Mexíkóinn í liði Þórs/KA næsta sumar því markvörðurinn Cecilia Santiago samdi við félagið á dögunum.
Báðar spiluðu þær með Mexíkó í lokakeppni HM í fyrra sem og árið 2011.
