22.01.16 - 13:30
Magnús Már Einarsson
Rebekah Bass og Lisa-Marie Woods til ÍBV (Staðfest)

Lisa-Marie Woods (til vinstri) í leik með norska landsliðinu.

Mynd: Getty Images

ÍBV hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í Pepsi-deild kvenna í sumar en þær Rebekah Bass og Lisa-Marie Woods hafa samið við félagið.
Lisa-Marie er 31 árs Norðmaður en hún spilaði síðast með BIIK Kazygurt í Kasakastan. Hún á 23 landsleiki að baki með norska landsliðinu.
Lisa-Marie spilar á miðjunni en á ferlinum hefur hún einnig leikið í norsku úrvalsdeildinni, Þýskalandi, Bandaríkjunum og í Ástralíu.
Rebekah spilaði með Þrótti síðari hlutann á síðasta tímabili eftir að hafa áður leikið með Sunderland.
Hin tvítuga Rebekah spilar á kantinum en hún skoraði tvö mörk í sjö leikjum með Þrótti síðastliðið sumar.