Fotbolti.net
22.01.16 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Tino Costa leikmaður Fiorentina út tímabilið (Staðfest)

Tino Costa leikmaður Fiorentina út tímabilið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Argentínski miðjumaðurinn Tino Costa verður hjá Fiorentina, sem er í toppbaráttunni á Ítalíu, út tímabilið.

Costa kemur á láni frá Sparta Moskvu og fylgir kaupákvæði með lánssamningnum sem Rómverjar geta nýtt næsta sumar.
Costa er nýlega orðinn 31 árs gamall og á tvo landsleiki að baki fyrir Argentínu. Hann hefur leikið fyrir Montpellier, Valencia og Spartak Moskvu á síðustu árum og var á láni hjá Genoa í haust.

Fiorentina ætlar að styrkja sig í janúarglugganum og tilkynnti til að mynda Mauro Zarate til leiks í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.