Quique Setien, nýráðinn þjálfari Barcelona, segir að félagið sé að skoða möguleika á að bæta við framherja í hópinn áður en félagaskiptaglugginn lokar í næstu viku.
Luis Suarez verður frá keppni næstu fjóra mánuðina vegna meiðsla á hné og Barcelona vill fá mann til að fylla skarð ahns.
Luis Suarez verður frá keppni næstu fjóra mánuðina vegna meiðsla á hné og Barcelona vill fá mann til að fylla skarð ahns.
„Það er satt að við erum að ræða um þetta," sagði Setien á fréttamannafundi.
Pierre-Emerick Aubameyang, framherji Arsenal, og Rodrigo, framherji Valencia, hafa meðal annars verið orðaðir við Börsunga.
Athugasemdir