Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 22. janúar 2022 12:30
Brynjar Ingi Erluson
Framherji River Plate á leið til Man City
Julian Alvarez er á leið til River
Julian Alvarez er á leið til River
Mynd: EPA
Englandsmeistarar Manchester City eru að ganga frá kaupum á argentínska framherjanum Julian Alvarez frá River Plate en það er Guardian sem greinir frá.

Alvarez, sem er 21 árs gamall, þykir eitt mesta efni Argentínu um þessar mundir.

Hann skoraði 24 mörk og lagði upp önnur 15 á síðustu leiktíð með River.

Manchester City hefur lengi verið á eftir honum en nú er komið samkomulag um kaupverð. City greiðir 15 milljónir punda fyrir hann og verður hann áfram á láni hjá River til sumars.

Alvarez spilaði þá fyrstu A-landsleiki sína fyrir Argentínu á síðasta ári og hefur nú spilað fimm leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner