Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 22. janúar 2022 06:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Reynismenn fá tvo leikmenn frá Keflavík (Staðfest)
Mynd: Reynir S.
Reynir Sandgerði hefur samið við tvo leikmenn, þá Ægi Þór Viðarsson og Einar Sæþór Ólason.

Báðir eru þeir af Suðurnesjum en þeir léku alla yngri flokka og upp í 2. flokk með Keflavík. Þeir hafa verið við æfingar hjá Reyni frá því síðasta haust og hafa núna skrifað undir samning út tímabilið 2022.

Ægir Þór er 20 ára framherji en hann lék síðasta sumar með sameiginlegum 2. flokki Keflavíkur/Reynis og Víðis. Einar er 20 ára varnarmaður sem lék á síðasta tímabili með liði RB úr Reykjanesbæ, þar áður lék hann með Keflavík.

Reynir endaði í 7. sæti 2. deildar á síðasta tímabili eftir að hafa komist upp úr 3. deild sumarið 2020.
Athugasemdir
banner