22.01.25 - 17:40
Elvar Geir Magnússon
Evrópudeildin: Fullkomin byrjun hjá Solskjær

Ole Gunnar Solskjær.

Mynd: EPA

Ole Gunnar Solskjær.

Mynd: EPA
Besiktas 4 - 1 Athletic Bilbao
1-0 Milot Rashica ('17 )
1-1 Unai Gomez Echevarria ('45 )
2-1 Milot Rashica ('60 )
3-1 Rafa ('77 )
4-1 Joao Mario ('90 , víti)
1-0 Milot Rashica ('17 )
1-1 Unai Gomez Echevarria ('45 )
2-1 Milot Rashica ('60 )
3-1 Rafa ('77 )
4-1 Joao Mario ('90 , víti)
Ole Gunnar Solskjær gat ekki beðið um betri byrjun í stjórastólnum hjá tyrkneska liðinu Besiktas. Liðið vann Athletic Bilbao 4-1 í Evrópudeildinni.
Solskjær, sem er 51 árs, var ráðinn stjóri Besiktas á föstudaginn, þremur árum eftir að hann var rekinn frá Manchester United.
Bilbæingar voru ósigraðir í Evrópudeildinni fyrir leikinn og höfðu unnið fimm síðustu leiki sína. Besiktas þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að eiga von um að komast áfram úr deildarkeppninni.
Og leikmenn Besiktas sýndu nýja stjóranum sparihliðarnar í dag. Besiktas er komið upp í 18. sæti en liðin sem enda í sætum 9-24 komast í umspilið. Athletic er í öðru sæti en efstu átta liðin fara beint í 16-liða úrslitin.