Englendingurinn Jadon Sancho vakti athygli fyrir viðtal sem hann fór í eftir öruggan sigur Borussia Dortmund gegn Schalke í þýsku úrvalsdeildinni í gær.
Sancho mætti í viðtal ásamt Norðmanninum Erling Haaland. Þeir voru báðir á skotskónum í leiknum, ásamt því að Sancho lagði upp glæsilegt mark sem Haaland skoraði.
Sancho er uppalinn í London en hefur verið í Þýskalandi frá 2017. Hann var með ákveðinn hreim í viðtalinu en talað er um það í breskum fjölmiðlum að hann hafi verið að reyna við þýskan hreim.
Joey Barton, sem talaði ensku með frönskum hreim þegar hann spilaði með Marseille á sínum tíma, sá þetta viðtal við Sancho og tjáði sig um það á samfélagsmiðlum.
„Ekki hafa áhyggjur Sancho. Þetta kemur fyrir bestu menn," skrifaði Barton í gríni.
Hér fyrir neðan má sjá viðtalið og viðtal við Barton fyrir nokkrum árum þegar hann talaði með frönskum hreim.
Don’t worry @Sanchooo10
— Joey Barton💙 (@Joey7Barton) February 21, 2021
Happens to the best of us...🤣🤣 https://t.co/fjaTcTzr2l
Athugasemdir