Fotbolti.net
22.02.22 - 18:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ajax borgar fjölskyldu Nouri ríflega milljarð - Læknishjálpin ófullnægjandi

Ajax borgar fjölskyldu Nouri ríflega milljarð - Læknishjálpin ófullnægjandi
Canon

Mynd: Getty Images

Abdelhak Nouri fékk hjartaáfall í leik með Ajax árið 2017. Í framhaldinu hlaut hann heilaskaða og nú hefur hollenska félagið samþykkt að greiða fjölskyldu bætur.

Ajax mun greiða Nouri fjölslkyldunni bætur sem nema um 1,1 milljarði íslenskra króna.
Það tókst að endurlífga Nouri á vellinum og í kjölfarið var hann fluttur á sjúrkahús. Þrátt fyrir það hlaut hann varanlegan heilaskaða.

Ajax hefur viðurkennt að læknishjálpin hafi ekki verið fullnægjandi og borgar því fjölskyldunni bætur.

Ajax hélt áfram að borga laun Nouri eftir atvikið en samningi hans var endanlega sagt upp í mars 2020.

„Við öll áttum okku á því að þjáningunum fyrir Abdelhak og ástvini hans er ekki lokið. Þetta er áfram mjög sorgleg staða og þannig líður okkur hjá Ajax líka,“ sagði Edwin van der Sar, framkvæmdastjóri Ajax, í yfirlýsingu frá félaginu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.