22.02.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Dion Acoff til Union Omaha (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
<p>Bandaríski kantmaðurinn Dion Jeremy Acoff er farinn aftur til heimalandsins þar sem hann mun leika fyrir Union Omaha sem vann C-deildina í fyrra.</p>
Dion hefur verið partur af íslenska boltanum undanfarin sjö ár og á 127 leiki að baki.
Dion gekk fyrst í raðir Þróttar R., varð svo tvöfaldur Íslandsmeistari með Val áður en hann hélt aftur til Þróttar og spilaði síðast fyrir Grindavík.
Það eru spennandi tímar framundan á seinni hluta ferilsins hjá hinum þrítuga Dion þar sem hann fær að reyna fyrir sér í Bandaríkjunum eftir langa fjarveru.
