22.02.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Djair til Dover Athletic (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Djair Parfitt-Williams, sem lék með Fylki undanfarin tvö ár, er genginn til liðs við Dover Athletic í ensku utandeildinni.
Djair er 25 ára gamall kantmaður sem kom við sögu með West Ham í Evrópudeildinni fyrir sjö árum síðan. Hann skoraði sjö mörk í 31 leik með Fylki í Pepsi Max-deildinni og gerði tvö mörk í tveimur bikarleikjum.
Djair fer til Dover á frjálsri sölu og fær treyju númer 34. Dover leikur í fimmtu efstu deild enska deildakerfisins.
Það eru spennandi tímar framundan fyrir Djair sem hefur ekki leikið í heimalandinu síðan hann yfirgaf West Ham fyrir fimm árum.