22.02.22 - 17:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jesper Juelsgård í Val (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Valur hefur tilkynnt að Jesper Juelsgård væri genginn í raðir félagsins. Félagaskiptin hafa legið í loftinu að undanförnu en Fótbolti.net greindi fyrst frá skiptunum fyrir tveimur vikum síðan.
Juelsgård er 33 ára varnarmaður sem getur bæði spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður.
Hann lék á sínum tíma tvo A-landsleiki fyrir Danmörku. Á ferlinum hefur hann spilað með Midtjylland, Skive, Bröndby og AGF í Danmörku og Evian í Frakklandi.
„Þessi reynslumikli og öflugi leikmaður kemur frá AGF þar sem hann lék vel yfir 100 leiki. Jesper hefur leikið með öllum yngri landsliðum og A-landsliði Dana. Við bjóðum Jesper velkominn á Hlíðarenda," segir m.a. í færslu Vals.
Komnir
Aron Jóhannsson frá Lech Poznan
Ágúst Eðvald Hlynsson frá Danmörku (á láni)
Guy Smit frá Leikni R.
Heiðar Ægisson frá Stjörnunni
Hólmar Örn Eyjólfsson frá Noregi
Jesper Juelsgård frá Danmörku
Orri Hrafn Kjartansson frá Fylki
Kári Daníel Alexandersson frá Gróttu (var á láni)
Farnir
Christian Köhler í ÍA
Hannes Þór Halldórsson
Johannes Vall í ÍA
Kaj Leo í Bartalsstovu í ÍA
Kristinn Freyr Sigurðsson í FH
Magnus Egilsson