Fotbolti.net
22.02.22 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Katie Pingel og Annie Williams í sænska boltann (Staðfest)

Katie Pingel og Annie Williams í sænska boltann (Staðfest)
Canon

Mynd: KR

Kvennaboltinn

Kalmar eru nýliðar í efstu deild kvenna í Svíþjóð eftir að hafa komist upp úr næstefstu deild á síðustu leiktíð.

Liðið er því að styrkja sig í vetur og var að krækja í tvo leikmenn úr íslenska boltanum fyrir keppnistímabilið sem byrjar í lok mars.

Kalmar krækti í þær bandarísku Kathleen Rebecca Pingel frá KR og Antoinette Jewel Williams frá ÍBV.

Katie Pingel skoraði 8 mörk í 15 leikjum með KR í Lengjudeild kvenna í fyrra á meðan varnarmaðurinn Annie Williams var lykilmaður í liði ÍBV í Pepsi Max-deildinni.



Hjá Kalmar verða þær liðsfélagar landsliðskonunnar Hallberu Gísladóttur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.