22.03.13 - 21:35
Brynjar Ingi Erluson
Bowyer tekur tímabundið við Blackburn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gary Bowyer, þjálfari varaliðs Blackburn Rovers, hefur tímabundið tekið við stjórnartaumum sem knattspyrnustjóri félagsins, eða út tímabilið.
Blackburn, sem situr í 18. sæti í Championship-deildinni, rak á dögunum Michael Appleton frá félaginu, en honum tókst ekki að bæta gengi liðsins frá því hann tók við í janúar.
Henning Berg var áður við stjórnvölinn hjá Blackburn, en var sagt upp störfum í desember og tók þá Gary Bowyer, þjálfari varaliðsins, tímabundið við keflinu, en hann hefur fengið það hlutverk á ný.
Það er því hans hlutverk að bjarga félaginu frá falli, en síðast þegar hann stýrði aðalliðinu þá tókst honum að vinna þrjá leiki og gera eitt jafntefli í þeim fjórum leikjum sem hann stýrði liðinu.