Fotbolti.net
22.03.16 - 12:18
Elvar Geir Magnússon

Lanzini gerir fjögurra ára samning við West Ham (Staðfest)

Lanzini áfram hjá West Ham.

Lanzini áfram hjá West Ham.

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur gengið frá kaupum á Manuel Lanzini frá Al Jazira. Þessi 23 ára miðjumaður var hjá West Ham á láni en er nú kominn í eigu enska félagsins.

Lanzini er Argentínumaður og gerði fjögurra ára samning með möguleika á tveimur árum til viðbótar.
Lanzini skoraði í 2-2 jafntefli West Ham gegn Chelsea á dögunum.

West Ham hefur leikið vel á tímabilinu, er í fimmta sæti og er í baráttu um sæti í Meistaradeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.