22.03.22 - 11:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Atli Geir heim í Njarðvík (Staðfest)

Í leik með Njarðvík árið 2019.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í leik með Njarðvík árið 2019.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njaðrvík hefur krækt í liðsstyrk fyrir komandi tímabil í 2. deild því Atli Geir Gunnarsson hefur samið um að leika með liðinu frá júlí til september.
Atli stundar nám í sjúkraþjálfun í Danmörku og kemur heim í lok júní mánaðar. Í kjölfarið kemur hann til móts við Njarðvíkurliðið.

Atli Geir er uppalinn Njarðvíkingur en hefur spilað með Þrótti Reykjavík síðastliðin 2 tímabil áður en hann hélt til Danmerkur í nám.
Atli er 22 ára varnarmaður sem á að baki 57 leiki í B-deild með annarsvegar Njarðvík árið 2019 þar sem hann var valinn leikmaður ársins hjá Njarðvík það tímabil, og hinsvegar Þrótti Reykjavík síðustu 2 ár.
Þá á hann einnig 2 leiki fyrir Keflavík í efstu deild árið 2018, sem og tvo U18 ára landsleiki árið 2017.
„Það er mikið gleðiefni að fá Atla heim í baráttuna með Njarðvíkurliðinu í sumar. Knattspyrnudeildin býður Atla velkominn!" segir í tilkynningu Njarðvíkur.