22.03.22 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Keflavík lánar Björn í Reyni (Staðfest)

Mynd: Keflavík

Mynd: Keflavík
Keflavík hefur lánað Björn Aron Björnsson til Reynismanna í Sandgerði. Björn mun því spila með Reyni í 2. deild í sumar.
Hann var á láni síðasta sumar hjá Víði í Garðinum en hefur verið með Keflvíkingum í vetur og bætt sig töluvert ef marka má tilkynningu Keflavíkur.
„Þjálfarar Keflavíkur telja mikilvægt fyrir Björn að halda áfram að þróa sinn leik. Við viljum óska Reynismönnum og Birni góðs gengis í sumar 🙌"
Björn Aron er 21 árs gamall miðjumaður sem uppalinn er á Suðurnesjunum.