22.03.22 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þórsarar fá enskan miðjumann (Staðfest)

Mynd: Portadown FC

Mynd: Portadown FC

Þórsarar hafa fengið miðjumann í sínar raðir, Englendingurinn Sammie McLeod mun spila með liðinu í sumar.
Sammi er 21 árs og hefur leikið á Bretlandi allan sinn feril. Hann var á sínum tíma á mála hjá Leicester. Síðast var hann á mála hjá enska félaginu Lewes og þar á undan var hann hjá Portadown í Norður-Írlandi.

„Von er á Sammie til landsins í byrjun næsta mánaðar," segir í tilkynningu Þórs.
Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs, er spenntur fyrir þessari viðbót í okkar herbúðir.
„Þetta er örvfættur miðjumaður sem er sterkur í loftinu og með góðar sendingar og skot. Hann hefur verið á mála hjá sterkum liðum og við erum hrikalega spenntir að fá hann til okkar,“ segir Láki.